Gallerí Ormur

Gallerí Ormur er lista- og sýningarsalur í Sögusetrinu sem settur var upp árið 2001 í kjölfar flutnings Kaupfélagssafnsins í stærri sal. Með tilkomu gallerísins er starfsemi Sögusetursins fjölbreyttari og nær nú yfir flest alla þætti menningarlífs í Rangárþingi eystra. Meginhlutverk gallerísins er að halda í heiðri menningararfleifð sveitarfélagsins og er það einna helst nýtt til sýningarhalds á verkum ýmissa listamanna sem tengjast sveitarfélaginu á einn eða annan hátt.

Salur gallerísins hentar vel til tónleikahalds fyrir minni uppákomur, þar sem hann þykir hafa einstaklega góðan hljómburð.

Mögulegt er að leigja salinn fyrir fundi eða ýmis konar uppákomur. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá starfsmönnum Sögusetursins.

  • Sögusetrið

    Í Sögusetrinu er einstök Njálusýning, kaupfélagssafn, myndlistarsalurinn Gallerí Ormur, líkan af Þingvöllum árið 1000, minjagripa & bókaverslun og Söguskálinn – sem er veitinga- og samkomusalur í sögualdarstíl fyrir allt að 100 manns og hægt er að fá leigðan fyrir hverskyns mannfagnað, fundi og veislur.

    Meira um Njáluferðir hér

  • Opnunartími

    - 15. maí til 15. september er opið alla daga vikunnar kl. 09-18.
    - 16. september til 14. maí er opið allar helgar kl. 10-17.
    - Alla aðra daga og á öðrum tímum sólarhrings er opið samkvæmt pöntun og samkomulagi.

  • Hópar og einstaklingar geta pantað heimsókn í Sögusetrið, ferð á söguslóðir Njálu og/eða aðgang að Söguskálanum hvenær sem er.

    Síminn er 487 8781. Farsími forstöðumanns (opinn allan sólarhringinn) er 618 6143.

    Netföng: njala@njala.is og ziggi@siol.net

  • Fréttir og viðburðir

  • Söguslóðir