Sögusetrið
Í Sögusetrinu er einstök Njálusýning, kaupfélagssafn, myndlistarsalurinn Gallerí Ormur, líkan af Þingvöllum árið 1000, minjagripa & bókaverslun og Söguskálinn – sem er veitinga- og samkomusalur í sögualdarstíl fyrir allt að 100 manns og hægt er að fá leigðan fyrir hverskyns mannfagnað, fundi og veislur.
Opnunartími
- 15. maí til 15. september er opið alla daga vikunnar kl. 09-18.
- 16. september til 14. maí er opið allar helgar kl. 10-17.
- Alla aðra daga og á öðrum tímum sólarhrings er opið samkvæmt pöntun og samkomulagi.-
Hópar og einstaklingar geta pantað heimsókn í Sögusetrið, ferð á söguslóðir Njálu og/eða aðgang að Söguskálanum hvenær sem er.
Síminn er 487 8781. Farsími forstöðumanns (opinn allan sólarhringinn) er 618 6143.
Netföng: njala@njala.is og ziggi@siol.net
-
Fréttir og viðburðir
Söguslóðir
Íslenska
English 

Söguslóðir
Staðirnir eru merktir með merki Sögusetursins og þar er víða að finna upplýsingaskilti sem gera grein fyrir því hvernig staðurinn tengist atburðum og persónum sögunnar. Auðvelt er að komast á alla þá staði sem hér eru tilgreindir. Sögusetrið getur útvegað þaulvana leiðsögumenn með minni og stærri hópum.
Keldur
Á Keldum bjó Ingjaldur Höskuldsson, sem brást Flosa í aðförinni að Bergþórshvoli. Ingjaldur var bróðir Hróðnýjar sem átti soninn Höskuld með Njáli. Bærinn á Keldum er eini stóri varðveitti torfbærinn á Suðurlandi og er nú í eigu og umsjá Þjóðminjasafnsins. Á bænum eru sex stafnþil fram á hlað og er eitt þeirra inngangur til skála. Skáli þessi er af fornri gerð og hinn eini varðveitti sinnar tegundar. Slík hús voru algeng hér fyrr á öldum. Á Keldum getur að líta þrjú mismunandi byggingarskeið, þ.e. elsti hluti bæjarins er úr torfi og grjóti, miðhlutinn heldur yngri þar sem timburhúsið er klætt bárujárni fram á hlað. Hið yngsta er járnvarið timburhús frá 1937 og er af þeirri gerð sem algeng var í sveitum um það leyti.
Voldugasti kirkjugoði 12. aldar Jón Loftsson (1124-1197) átti eitt höfuðbóla sinna á Keldum, þar bjó hann síðustu æviárin og þar mun hann grafinn. Jón Loftsson stofnaði klaustur á Keldum en það var skammlíft. Snorri Sturluson var sendur í fóstur til Jóns Loftssonar þegar Jón bjó á Odda á Rangárvöllum.
Gunnarssteinn
Einn frægasti bardagi sögunnar var við Rangá þar sem Gunnarssteinn er. Talið að Gunnar hafi staðið á steininum þegar hann barðist. Í þetta sinn sátu þeir Þorgeir Starkaðarson og Þorgeir Otkelsson með fjölda manns fyrir Gunnari og Kolskeggi er þeir komu neðan úr Landeyjum. Í þessum bardaga vó Gunnar Þorgeir Otkelsson. Það reyndist afdrifaríkt því hann hafði áður vegið Otkel föður hans. Njáll á Bergþórshvoli hafði sagt Gunnari að ef hann “vegi í sama knérunn oftar en um sinn” (dræpi menn úr sömu ætt) myndi það ásamt því að rjúfa sætt verða til þess að hann hefði bana af. Mörður Valgarðsson á Hofi hafði lagt á ráð um fyrirsát þeirra Þorgeiranna enda vissi Mörður af spádómi Njáls.
Þríhyrningur
Fjallið Þríhyrningur gnæfir yfir Fljótshlíðina og Landeyjar. Sættir fóru út um þúfur á Alþingi eftir víg Höskuldar hvítanesgoða og því ekkert til ráða nema hefndir. Flosi Þórðarson á Svínafelli, sem sá um málið fyrir hönd ekkjunnar og bróðurdóttur sinnar Hildigunnar Starkaðardóttur, stefndi fylgismönnum sínum þangað þegar tæpar átta vikur voru til vetrar. Brennumenn hittust við Þríhyrningshálsa þar sem þeir leyndust þar til þeir fóru að Bergþórshvoli. Eftir brunann á Bergþórshvoli héldu brennumenn upp á Þríhyrning í Flosalág, þar sem þeir dvöldu þar til þeir sáu að þeim stóð ekki lengur hætta af eftirleitarmönnum.
Hlíðarendi
Hlíðarendi er innarlega í Fljótshlíðinni og stendur hátt eins og títt var með höfðingjasetur. Þannig voru minni líkur á að menn gætu komið heimamönnum að óvörum. Frá Hlíðarenda sér yfir Markarfljótsaura og niður í Landeyjar. Þaðan er prýðisútsýni að Rauðuskriðum (Stóra Dímon) og fjallasýn mikil. Gunnar Hámundarson bjó á Hlíðarenda þar sem hann ólst upp. Á heimili þeirra Hallgerðar Höskuldsdóttur voru synir þeirra tveir Högni og Grani. Í Brennu-Njálssögu má sjá eftirfarandi lýsingu á þeim bræðrum: “Þeir voru menn óskaplíkir. Hafði Grani mikið af skapi móður sinnar, en Högni var vel að sér.” Á heimilinu var einnig Rannveig Sighvatsdóttir móðir Gunnars. Ekki var kært með þeim tengdamæðgum.
Rauðuskriður
Rauðuskriður rísa eins og eyja upp úr Markarfljótsaurum. Þar áttu þeir skóg saman Gunnar á Hlíðarenda og Njáll á Bergþórshvoli. Þrælavígin hófust við Rauðaskriður þegar Hallgerður sendi Kol þræl sinn að vega Svart þræl Njáls og Bergþóru. Þegar þetta gerðist höfðu Gunnar og Njáll riðið til þings. Hallgerður sendi mann til Gunnars á þingið að segja honum vígið og Gunnar greiddi Njáli tólf aura silfurs í manngjöld fyrir Svart. Fleiri víg fylgdu í kjölfar þessa en þau vörpuðu aldrei skugga á vináttu þeirra Gunnars og Njáls.
Markarfljót
Markarfljót er jökulá sunnan Fljótshlíðar. Fljótið er um 100 km langt og getur orðið talsvert vatnsmikið. Við Markarfljót sátu Njálssynir fyrir Þráni Sigfússyni þegar hann var að koma frá Runólfi á Dal. Þráinn hafði komið Nálssonum í vandræði gagnvart Hákoni jarli í Noregi og neitaði að greiða þeim bætur þegar út var komið til Íslands. Nú skyldi hefnt. Í þeim bardaga vó Skarphéðinn Þráin Sigfússon. Í framhaldi af því bauð Njáll Höskuldi syni Þráins og Þorgerðar Glúmsdóttur fóstur hjá sér og gerði ætíð mjög vel við Höskuld, útvegaði honum meðal annars goðorð og gott kvonfang.
Bergþórshvoll
Á Bergþórshvoli bjuggu Njáll Þorgeirsson og Bergþóra Skarphéðinsdóttir ásamt sonum sínum og vinnuhjúum. Njáll var einn vitrasti maður landsins á sínum tíma, lögfróður og forspár og naut mikillar virðingar. Hann var nánasti vinur Gunnars á Hlíðarenda. Í síðari hluta sögunnar verða ýmsar gerðir sona hans til þess að grafa undan virðingu hans. Eftir víg Höskuldar hvítanesgoða etur ekkja hans Hildigunnur Starkaðardóttir, Flosa föðurbróður sínum til að hefna fyrir vígið. Flosi safnar saman liði og menn bera eld að bænum á Bergþórshvoli. Þar brunnu Njáll og Bergþóra, synir þeirra og dóttursonurinn Þórður. Einn maður, Kári Sölmundarson tengdasonur þeirra og faðir drengsins komst út úr eldinum. Kári hefndi sonar síns en fór síðan til Rómar þar sem hann fékk fyrirgefningu páfa.