Sögusetrið
Í Sögusetrinu er einstök Njálusýning, kaupfélagssafn, myndlistarsalurinn Gallerí Ormur, líkan af Þingvöllum árið 1000, minjagripa & bókaverslun og Söguskálinn – sem er veitinga- og samkomusalur í sögualdarstíl fyrir allt að 100 manns og hægt er að fá leigðan fyrir hverskyns mannfagnað, fundi og veislur.
Opnunartími
- 15. maí til 15. september er opið alla daga vikunnar kl. 09-18.
- 16. september til 14. maí er opið allar helgar kl. 10-17.
- Alla aðra daga og á öðrum tímum sólarhrings er opið samkvæmt pöntun og samkomulagi.-
Hópar og einstaklingar geta pantað heimsókn í Sögusetrið, ferð á söguslóðir Njálu og/eða aðgang að Söguskálanum hvenær sem er.
Síminn er 487 8781. Farsími forstöðumanns (opinn allan sólarhringinn) er 618 6143.
Netföng: njala@njala.is og ziggi@siol.net
-
Fréttir og viðburðir
Söguslóðir
Íslenska
English 

Um Sögusetrið
Víkingakonur tilbúnar til orrustu
Hópur víkinga með alvæpni
Upplýsingar fyrir ferðamenn
Matsalurinn í Sögusetrinu er veglegur
Safnið í Sögusetrinu
Sýningarmunir í safninu
Sögusetrið á Hvolsvelli er menningarmiðstöð Rangárþings eystra.
Þar eru til húsa stórmerkar sýningar og söfn sem tengjast menningu sveitarfélagsins, fyrr og nú.
Auk þess er í Sögusetrinu boðið upp á fjölbreytta menningarviðburði og skemmtanir árið um kring – ritlist, fræði, myndlist, leiklist, tónlist, glens og gaman.
Þá skipuleggur starfsfólk Sögusetursins ferðir á Njáluslóðir með fræðandi og skemmtilegri leiðsögn á nokkrum tungumálum. Einnig er boðið upp á veislur í setrinu – mat og drykk.
Í Sögusetrinu er að finna tvær viðamiklar sýningar sem eru einstakar í sinni röð: Njálusýningu og Kaupfélagssafn.
Njálusýningin. Þar er Brennu-Njálsssaga kynnt í máli og myndum á einkar skemmtilegan, aðgengilegan og fræðandi hátt: sögutími Njálu og ritunartími, heimsmynd miðalda, söguöldin, þjóðveldisöldin, víkingaöldin, landnámið, stafrófið og leturgerðin, bókagerðin, fatnaður og vopn, heiðinn siður og kristinn, og sagan sjálf sérstaklega – bygging hennar og sérkenni, tímatal og tímarás, heimkynni og sögustaðir, helstu atburðir og persónur … svo fátt eitt sé nefnt.
Kaupfélagssýningin. Þar sem gestir upplifa verslunarhætti og þjónustuhætti kaupfélaganna á síðustu öld. Þar er urmull af spennandi gripum, myndum, tækjum og tólum úr sögu kaupfélaganna á Suðurlandi.
Sýningarsalurinn Gallerí Ormur er myndlistarsalur sem einnig er nýttur til tónleika og kóræfinga. Þar eru reglulega sýningar listamanna úr Rangárþingi eystra, auk sýninga annarra áhugaverðra listamanna, ekki síst þeirra sem fengið hafa innblástur úr menningu og náttúru héraðsins.
Þá geymir Sögusetrið stórt líkan af alþingi á Þingvöllum árið 1000 sem sett var upp í tilefni af Kristnitökuhátíðinni sumarið 2000. Þar geta gestir séð með eigin augum búðaskipan og þinghald þetta örlagaríka sumar þegar heiðinn siður var af lagður og kristni lögtekin.
Söguskálinn er í miðju Sögusetrinu. Einstakur veitingasalur í anda langhúsanna til forna. Hann tekur allt að 100 manns í sæti. Þar er einnig bar og öflugt kolagrill. Inn af salnum er fullbúið eldhús. Salurinn nýtist við hin ýmsu tækifæri – til veislu- og fundahalds, tónleika, leiksýninga, upplestra, listkynninga, vörukynninga, skemmtana, gestaboðs og samkvæma af öllu tagi. Salurinn er jafnframt leigður út ásamt eldhúsaðstöðu gegn vægu gjaldi.
Í Sögusetrinu er aukinheldur minjagripa- og bókaverslun.